Matargestir: Ég, Arna, Áslaug, María, Silla
og Vala
Eftir mat: Sólrún og Sandra H.
Mig langaði til að þakka kærlega fyrir síðast
Fyrir þær ykkar
sem komust ekki þá vonandi geti þið látið sjá ykkur næst eða
þarnæst því nú verður þetta að mánaðarlegu fjöri
Maturinn samanstóð af grilluðum, fylltum kjúklingabringum (allar
hjálpuðust að), salati, bakaðri kartöflu og svakalegum eftirrétt
þar með súkkulaði, jarðarberjum, bláberjum og ís. Eftir það hófst
mikil drykkja og fjör og mættu Sandra og Solla hressar. Ég held
samt að ég hafi toppað kvöldið í drykkju og man lítið eftir
bílferðinni niður í bæ og það sem eftir er kvöldsins er mjög
gloppótt
En bara gaman að því
En hvernig væri nú að fara skipuleggja næsta hitting, hvernig er
staðan á ykkur fimmtudagskvöldið 26. júlí? Ég er sjálf upptekin
föstudaginn en er laus að öðru leiti.
Endilega kommentið og reynum að setja inn einhverjar
myndir frá þessu skemmtilega kvöldi. Þið hinar Fansípants sem ekki
mættuð var sárt saknað og ég vona að við getum hist fleiri
næst.
Loves
Sjöfn Eva